...frá jólatré...til jólatráa.
Já maður byrjar kannski á einu og svo er kominn heill skógur áður en maður veit af. Þessi tré gerði ég fyrir Jólaföndur í Einingar-Iðju blaðinu 2013. Ég læt bara alla greinina vaða frá A-Ö og bæti svo kannski einhverju ögn við í lokin. Búið ykkur undir langloku :Þ
Þegar
ég var beðin um að vera með smá jólaföndur í blaðinu velti ég því fyrir mér
hvað sniðugt að gera. Hvað væri auðvelt, ódýrt en flott. Það væri líka kostur
ef það krefiðst þess ekki að fólk þyrfti aðgang að verkstæði jólasveinanna til
að framkvæma hlutinn. Eftir nokkrar andvökunætur kviknaði hugmyndin. Það er
alveg merkilega erfitt að láta sér detta svona einfaldir hlutir í hug. Að búa
til kramarhús er ekki ný hugmynd, og því síður er það mín uppfinning, aldeilis
ekki. Kramarhús hafa verið föndruð fyrir
jólin í áratugi og notuð til skreytinga. Það sem gerir þetta skemmtilegt í dag
er allt það efnisúrval sem er í boði. Hlaðnar hillur af dásamlegum pappír í
allskyns munstrum og áferðum fá mig til að kikna í hnjánum. Möguleikarnir eru
endalausir. Pappír er mjög meðfærilegt efni að vinna með. Það þarf ekki
endilega að vera “drasl”.
Þessir
krúttboltar voru fyrsta hugmyndin, einskonar skissuvinna. 3 arkir af pappír með
ólíku munstri en í sömu litatónum. Hæðin
er á bilinu 20-30 cm. Trén eru misbreið, þessi eru á bilinu 7-10 cm. Það er
hægt að kaupa munstraðan pappír í stærðnni 30x30 cm í flestum föndurverslunum.
Svo má alltaf nota umbúðapappír. Snjókornin á toppnum eru klippt út með stórum
munsturgatara. Það mætti líka hekla snjókorn eða kaupa eitthvað tilbúið skraut.
Fæturnir á trjánum eru glös sem ég setti trén ofan á. Það gerir þau
tignarlegri.
Ég
útbjó smá sýnikennslu á því hvernig eitt svona tré (það flóknasta) var búið
til. Svo byrjaði ég að prufa mig áfram og áður en ég vissi af var ég búin að
fylla stofuna af jólatrjám, það er svo gaman að stilla þessum elskum upp. Það
er næstum hægt að setja þau með öllu.
SÝNIKENNSLAN
- Klippið
út ¼ úr hring til að gera keilu. Lengdin
á beinu hliðinni verður hæðin á trénu. Þetta tré er 21 cm. eða eins stórt og
hægt er að gera úr A4 blaði.
- Mótið
keiluna með því að rúlla pappírnum í höndunum svo hann verði mýkri og
meðfærilegri.
- Setjið
lím á kantinn og límið saman. Ég notaði tvöfallt límband, en það má alveg nota
fljótandi lím, heita límbyssu eða jafnvel heftara.
- Lím
er missterkt, svo ef það mun ekki sjást þá er gott að setja 1-2 hefti til
öryggis. Þá er keilan tilbúin til skreytingar
- Til
að skreyta þessa keilu gerði ég slatta af litlum blómum með munsturgatara.
- Svo
að blómin verði aðeins meira lifandi en ekki alveg flöt þá er gott að beygja
aðeins blöðin á þeim. Já nei, ég er ekki að rugla í ykkur, það þarf ekki að
krulla upp eitt og eitt blað í einu. Ég sópaði bara upp smá bunka af blómum,
ca. 5-10 stykkjum og beygði þau öll saman. Það eru til sérstakir “hnífar” úr
beini í svona verkefni, en það má líka bara nota, bitlausan hníf, reglustiku
eða íspinnaspítu.
- Þá er
að líma öll sætu blómin á, fjúff! Eitt,
tvö, þrjú….. mig kveið pínu fyrir þessari aðgerð en þetta gekk síðan svona líka
vel með því að setja bara nokkrar doppur af lími og klessa svo blómunum nokkrum
blómum í.
- Jibbý!
Hálfnuð! Neinei, þetta tók enga stund. Mér finnst þetta lím mjög gott því það
er svo fljótt að þorna, en auðvitað er hægt að nota allskonar lím sem límir
pappír.
- Ég
elska þessa perlupenna! Þeir eru alveg uppáhalds og gera allt svo fallegt!
Maður sprautar bara litla punkta, dúbb, dúbb, dúbb, og hamingjan færist yfir.
- Taddaraaa!
Litla sæta tréð er tilbúið. Punkturinn yfir i-ið var að festa eina rauða
glerperlu á toppinn með títuprjóni.
Þarna er svo
dúllega sýnikennslutréð búið planta sér hjá kökudisknum mínum með dásamlega
fallega hreindýrinu sem ég fékk í jólagjöf í fyrra. Ég skellti trénu á glas til
að hækka það. Síðan gerði ég eitt lítið tré (16x6cm) svona því til
samlætis. Það er ekkert skraut á því, mér fannst pappírinn alveg sjá um að
skreyta það.
Það vill
svo til að ég á nokkur jólatré því ég er svolítið veik fyrir fallegum
jólatrjám… og hreindýrum… en þetta stóra
þarna er eitt af mínum uppáhalds. Ég keypti það fyrir nokkrum árum, en það er í
raun ekki mikið mál að búa það til. Það er í raun bara pappakeila sem búið
er að líma hvítar fjaðrir utan á og nokkar perlur. Til að gera það þarf maður að
byrja neðst og halda upp, ég mæli með límbyssu í verkið. Silfurlitaða tréð
(30x8 cm) er úr glimmerpappír. Ég elska glimmer, á öllu, allstaðar. Utan um það
er svo bara vafið móher garni. Endarnir eru límdir inní keilunni. Svo fékk eitt
af skissutrjánum að fljóta með í þessa uppstillingu.
Hér er
önnur mynd af fjaðratrénu og hreindýrinu fallega. Þau myndast bara svo vel. Mér finnst svo gaman að sýna hvernig hægt að
raða trjánum misjafnt upp, þau passa í raun flest saman. Litla rauða tréð gefur
skemmtilegan lit í uppstillinguna og í AÐAL jólalitnum (eða svo segir maðurinn
minn). En AÐAL númerið á þessari mynd er samt langa mjóa silfurtréð (30x5 cm.)
Það er úr dýrðlegum umbúðapappír sem ég átti síðan í fyrra. Ég límdi svo þessa
guðdómlegu blúndu neðan á það og setti það ofan á kertastjaka. Glæsilegt.
Á
þessu stigi var ég komin í ham. Stóra tréð (30x9 cm) er úr pappír sem er eins
og úr gamalli bók. Á toppinn setti ég gamla tölu úr töluboxi sem amma mín gaf
mér, fjársjóður! Þessi tala er með svona lykkju aftan á, alveg einstaklega
heppilegt til að stinga toppnum í gegnum. Litla tréð (15x7.5 cm.) er líka úr
glimmerpappír og eina sem ég gerði var að líma blúndu utan um það og setja það
á kertastjaka. Fremsta tréð (20x7 cm.) er vafið með afgangi af reyrðu
(litaskiptu) garni. Þetta er ullarblanda og er svo hlýlegt og vetrarlegt. Ég
límdi nokkrar litlar silfurstjörnur á framhliðina, þegar jólin eru búin get ég
snúið því við og haft það ennþá uppi. Stóra stjarnan er keypt og er í
uppáhaldi, eins finnst mér sérstaklega gaman að stilla upp á bækur og ekki er
það verra ef það eru gamlar ljóðabækur eftir afa.
Ég veit að ég á eftir að gera miklu fleiri tré. Þetta er einstaklega
fljótlegt og gaman að raða saman litum og stærðum eftir því hvað hentar hverju
sinni. Þetta gæti t.d. verið skemmtilegt vetrarborðskraut. Það væri hægt að
nota veggfóðursafganga, pappírshringservíettur, klæða keiluna með efni eða
blúndum, skreyta með bómull, setja myndir á eða prenta út fallegar myndir og
gera keiluna úr því og fleira og fleira. Svo þarf ekki að bæta miklu við til að
snúa keilunni við og hengja upp sem kramarhús.
Jólakveðja
Linda
Óla,
föndurkerling, handverkskona, myndlistamaður
Það er skemmst frá því að segja að ég á, nota og elska enn þessi tré. Ég hef notað þau á hverju ári bæði til að skreyta hér heima og í borðskreytingar.
Litlu jólin í vinnunni 2013
Ég hef verið óttalega ódugleg við að mynda jólaskrautið mitt síðustu 2 ár. Ég er eiginnilega bara í sjokki :O en ég fann hér 2 myndir af einni uppstillingu frá jólunum 2014 en ALLS ENGAR frá 2015 :o en ég skreytti örugglega...held ég :D
og hér eru svo trén komin upp með vetrarskrautinu í ár.
Svo nú er bara að rífa upp pappír og heftara og búa til nokkur auðveld jólatré :)