Wednesday, February 29, 2012

Fermingar....


Sennilega eru margir í fermingarundirbúningi um þessar mundir.  Mér finnst alveg ótrúlegt að það séu að verða 3 ár síðan dóttir okkar fermdist. Skvísan er sko að fá bílpróf eftir nokkra mánuði. Ég get svo svarið það!

Mér datt í hug að kannski hefði einhver gagn eða gaman að því að sjá skreytingarnar í fermingunni hennar.

Við (ég) vorum svo óheppin að standa í fermingarundirbúningi veturinn eftir hrunið, ekki mjög heppilegt fyrir föndurkonu eins og mig sem á bara eina dóttur og var búin að plana að dúlla mér við skreytingar og annan undirbúning allan veturinn. Þær urðu ófáar ferðirnar sem ég skannaði búðir í leit að skrauti, fatnaði og þess háttar. Það var sko ekki mikið um dýrðir í verslunum á þessum tíma, og ef ég fann eitthvað fallegt, þá kostaði það yfirleitt hönd og fót.  Flestar búðir voru líka mjög seinar með skreytingar, og því eitthvað erfitt að finna skemmtilegar hugmyndir.  Þetta endaði því flest með því að ég bjó allar skreytingar til sjálf.

fallega fermingarbarnið mitt 

Fermingarbarnið fékk að sjálfsögðu að velja litaþemað fyrir veisluna og varð eplagrænn fyrir valinu. Móðirin hefði getað hugsað sér annan lit í upphafi (bleikan), en tók djúpt andann og leyfði barninu að velja. Þegar svo vöruskorturinn kom í ljós, varð fljótt ljóst að okkur (mig) vantaði annan lit með til að gera þetta aðeins líflegra. Aftur fékk barnið að velja.....og þá fyrst fór nú mamman að svitna yfir litavalinu...júbbb... krakkinn vildi fjólubláan!  Grænt og fjólublátt! Vikurnar liðu og eftir að hafa skoðað allt skreytingarúrvalið á Akureyri 12 sinnum og amk 1 sinni í Reykjavík, þá ákvað ég að gera tillögu að þriðja litnum.  Dóttir mín er auðvitað smekkmanneskja og samþykkti þennan lit strax :) Plómufjólubleikur... eða hvað sem má kalla hann. Þetta varð því niðurstaðan. 

                                                           

Ein ábending til ykkar sem eruð að fara að ferma. Fáið einhvern ættingja eða vin til að taka myndir, af ÖLLU. Fermingarforeldrar hafa oftast í nógu að snúast (við vorum samt með fólk í eldhúsinu) og það gefst ekki svo mikill tími til að mynda allt í bak og fyrir.

Jæja vindum okkur í þetta :)

Ég var svo ljónheppin að fá sal með grænu áklæði á stólunum, jibbý!  eitt-núll fyrir mér :)


Svona var innkoman í salinn. Við komumst að því að með því að skáa borðunum, þá var mun rýmra um borðin. Veisluborðið sjálft var svo í miðjum salnum.

Við skiptum borðinu með upphækkun þvert yfir það (Froðuplastkubbar). Aftan við upphækkunina voru matardiskarnir (og seinna kaffidiskarnir) Maturinn var svo framan við. 


þessi mynd var tekin áður allur maturinn var kominn á borðið


Ég fékk lánaða þessa 3 glervasa sem eru á upphækkuninni. Batt tjullborða utan um þá og raðaði svo í hvern þeirra þremur gerfi gerberum (úr IKEA), fyllti með vatni og setti svo flotkerti ofaná.  
Ótrúlega ódýr og flott lausn.




Við leigðum hvíta dúka í þvottahúsi, og reyndist það ekki dýrara en að fara að nota bréfdúka eða kaupa efni í RL og klippa niður. Ég setti líka slaufur á hornin (með nælum) og í miðjunni á þeim hangir kristalsdropi (plast) sem ég keypti held ég í Blómaval á útsölu. ;)

Í salum var þetta fína (en ljóta) "bakkarennuborð". Alveg hreint tilvalið undir glösin svo ég keypti bara ódýran jarðvegsdúk og skellti yfir hann. Allt annað líf bara.

Bollarnir voru svo settir þarna eftir matinn. 

Servíetturnar voru keyptar í Býflugunni og blóminu og fíberdúkarnir í Blómabúð Akureyrar. Það er alveg lygilegt hvað meterinn af svona fiberlengjum kosta. Sérstaklega þessum ljósari. Svo til að þurfa aðeins færri metra, þá klippti ég þá styttri og hafði svo ódýrari mjóar ræmur yfir. Ég komst svo að því að það var bara betra að láta ekki lengjurnar ná útaf endunum, þeir hefðu verið á fleygiferð þannig. Litlu blómin fann ég í Blómaval og kostuðu eitthvað lítið og Kertastjakarnir voru í RL á útsölu, mig minnir að þeir hafi kostað 99 kr. 2 saman. SWEET :D Ég verð svo að játa það að ég er með smá komplexa þegar kemur að ódýrum hnífapörum (hver hefur sinn djöful að draga) svo það var farið í að safna saman sparihnífapörum úr fjölskyldunni (ég efast um að nokkur hafi tekið eftir því nema ég samt) en það gladdi mitt litla hjarta :)


Ein af séróskum fermingarbarnsins var að hafa svona hlaupkúlur. Þetta eru svona pínulitlar kúlur (svipuð og hrogn, en þegar þær eru lagðar í bleyti draga þær vatnið í sig og verða stærri.  Eina vesenið var að þetta er rándýrt...ja, allavega ef maður þarf nokkra poka af þessu. En glæru kúlurnar voru MIKLU ódýrari en þær sem voru litaðar, svo ég ákvað að redda mér. Tók þessar glæru og lagði í bleyti eins og uppskriftin á pakkanum sagði, nema ég skellti smá matarlit í vatnið fyrst ;) Kúlurnar urðu þó ekki nógu litmiklar svo ég hrærði bara meiri matarlit útí eftirá, þar til ég var ánægð með litinn.  Ég fékk þessa  glervasa lánaða á öll borðin, keypti stráin og blómin í blómabúð(mörg á hverri grein), klippti niður og setti í vasana með kúlunum. Fermingarbarnið happý :)

Ó hvað ég vildi að ég hefði átt fallegan kertastjaka undir fermingarkertið. En það var kreppa :I
Gestabókina keypti ég í Europris og skreytti að utan og innan ásamt kertinu.

 Blómunum var stungið í með prjónum.


Hér sést hin hliðin 


og smá svona díteils :)

Vá hvað þetta er orðið langt! 


Hér sést svo pakkaborðið, en þar voru líka gestabókin og albúm með fermingarmyndunum, en þær voru tilbúnar fyrir veisluna. Skreytinguna gerði ég líka sjálf, en held ég eigi því miður ekki betri mynd af henni. Hún var með gerfiblómum, svo ég gat gert hana löngu áður. 

Svo voru myndir af fermingarbarninu látnar rúlla á tölvuskjá. 


Svo verð ég að láta eina mynd af frænkunum hér inn. Þær eru bara svo sætar og alveg í stíl ;)

Vá mér datt ekki í hug að þetta gæti orðið svona langt þegar ég byrjaði á þessum pósti, og ég er enn með efni í annann.  Kökurnar sko....KÖKURNAR! :)


Framhald fljótlega elskurnar.....






Thursday, February 23, 2012

Skrapp til himnaríkis...


Nei þessi póstur er ekki um mitt hjartfólgna skrapp! Neinei... hann er sko um Öskudaginn :Þ  Það er nú þannig að ég vinn í félagsmiðstöð fyrir eldri borgara og við skvísurnar höfum til margra ára klætt okkur uppá á öskudaginn. Reyndar bregðum við oftar á leik þarna og búum þá bara til tilefni ef ekkert augljóst liggur fyrir. Þetta gerum við auðvitað til gera daginn eftirminnilegan fyrir fólkið sem kemur til okkar, en alls ekki síður fyrir okkur sjálfar! :)

Ég keypti mér þessa fínu vængi í Ice in the bucket. Dró svo fram pils og kjól sem ég átti til. Fjárfesti í dýrindis glimmer legghlífum og saumaði ermar úr gardínuefni sem ég fann inní skáp. Föndraði svo geislabaug/krans, smá meiköpp og mín bara orðin engill :) Ég sem hélt það mundi þurfa svo miklu meira til!

Þetta vakti alveg stormandi lukku, sérstaklega þegar ég sópaði niður gestum og gangandi þar sem ég "sveif" pent um húsið eins og sannir englar gera!

p.s. það er gott að alvöru englar þurfa ekki á klósettið :)



Pússa vængina fyrir myndatöku :)





Strympa, touched by an angel...





Og hér er svo allur hópurinn. Svo miklir snillingar þessar konur sem ég vinn með :)

Wednesday, February 15, 2012

Nú er sko gaman að skrappa!



Nú þegar allt er orðið svona fínt í föndurherberginu, þá tók ekki langan tíma að skella þessari síðu saman. Myndefnið er fallega skvísan mín. Þessi guðdómlega pappír og megnið af skrautinu er frá þeirri frábæru verslun Skrappoggaman

Monday, February 13, 2012

Velentínusardagurinn...

...er á morgun!  Hvernig er annars með þessa hefð... hefur hún náð einhverri fótfestu hér á klakanum? 

Persónulega finnst mér þetta krúttaraleg hefð. Við erum yfirleitt ekki nógu dugleg að knúsa hvert annað og tjá ást okkar.  Svo er þetta nottla alveg MEGA korta og föndurhátið svo hvernig á ég að geta annað en elskað hana :Þ  Ekki spillir nú bleiki liturinn og öll fallegu hjörtun <3

Ég hef nú ekki gert mikið af valentínusarkortum í gegnum tíðina. Þessi örfáu hef ég sent til ömmuríkis þar sem nokkrar vinkonur mínar búa. En kannski ég skelli í svona eitt kort í kvöld handa mínum heittelskaða. eða baki eitthvað sniðugt til að taka með í vinnuna

væri ekki sneddý að gera kanilsnúða með smá svona tilbreytingu


eða svona guðdómlega fallegar hjartakökur ... þvílík fegurð!


be still my heart! :)



Þessar eru líka súperkjút og súper auðvelt að búa til flöggin með grillpinnum og pappír


Spurning um að nenna þessu? 


Þetta er svona meira minn tebolli :)


Kort... endalaust til að fallegum kortum

Tölur eru alltaf svo sætar


Krúttað


Nammi....


Fallegt!


Shabby og sætt!


Einfalt en smart!


Ég gæti haldið endalaust áfram að skoða kort....

....en eigum við að ræða hvað þetta er mikil dásemd - litlar gjafir handa vinunum eða kennurum.


Dásamleg kramarhús undir nammi. Þetta er líka æðisleg hugmynd fyrir gestagjafir í brúðkaupi.


Gjööðveikir pakkar, ekki bara á valentínusardaginn.


TÖÖÖÖFFFF!


eeeeen ég veit nú ekki hvort ég mun föndra mikið í anda Valentínusar á morgun en ég er mikið að spá í að brjóta upp daginn og leggja eitthvað huggulega á borð annaðkvöld :)



og auðvitað knúsa kallinn : p


Friday, February 10, 2012

Bleikur vetur



Þetta er búinn að vera litríkur dagur.  Þorrablót í vinnunni og við stelpurnar héldum "tískusýningu" fyrir fólkið okkar í flottum, skrautlegum og furðulegum kjólum sem við fengum að láni hjá Leikfélaginu.  Svaka stuð :Þ

Svo er ég bara að tjilla núna og bíða eftir að fara í matarboð í kvöld í Matarklúbbnum okkar. Við erum fern hjón sem skiptumst á að bjóða í mat annan hvern mánuð yfir veturinn. Hver hjón halda því bara eitt matarboð á ári. Við hjónin höfum bæði mjög gaman að því að undirbúa þetta kvöld, og eyðum ótrúlegum tíma í að spá í mat, drykk og skreytingar :)  

Verkskiptingin á heimilinu er nokkuð skýr. Við ákveðum matseðilinn í sameiningu, svo sér hann um vínið en ég skreytingarnar ;) Ég sé svo að mestu um eldamennskuna, en hann að mestu um frágang. Góð skipti finnst mér ; )

.....bara 30 mín í mætingu  og við hjónin klár .....ohh hvað ég hlakka til.....  :)

Af þessu tilefni langar mig að sýna ykkur myndir úr matarboðinu okkar sem var rétt fyrir jólin í fyrra, með bleiku vetrarþema.  

Matarborðið að verða klárt fyrir kvöldið


Ég notaði jólakúlur og blóm sem ég bjó til og svo fullt af kertum.



Takið eftir stóra silfraða blóminu :) 


Smá skreytingar í þemanum hingað og þangað um húsið. Snjókornin eru þrykkt úr pappír með munsturgatara.



Steikin klár í ofninn - Nautahryggur, svaðalegt stykki :)

'

Allt grænmeti niðurskorið og tilbúið í slaginn.



Silfur rósirnar fékk ég í RL og diskarnir eru bræddir hjá okkur í vinnunni.


 Jæja, nú mega gestirnir koma :)



Nærmyndir af dúlleríinu. Texti úr jólalögum handskrifaðir utan um kúlurnar.




Glös fyrir fordrykkina bíða þolinmóð....


Alles klar :)


Steikin komin í ofninn


Humarsúpa í forrétt.
 Muniði eftir silfraða blóminu á borðinu.... það var bara þar í 2 mínútur eftir að gestirnir komu. Hvert fór það?  Finnur þú það? :Þ


Hindberjasorbet


Kallinn með steikina áður en hún var skorin


Mmmmmm... úff nú er ég orðin svöng


GJÖÖÖÐVEIKASTA súkkulaðikaka sem ég hef smakkað. Uppskriftina fann ég á krakkamatur og er svona eins holl og góðar súkkulaðikökur geta orðið. Eðal kaffi og jarðaberjalíkjör. De-lissí-jus!


Ég þrykkti út úr pappír alveg haug af snjókornunum til að skreyta og þá datt mér snjallræði í hug. Ég elska þegar maður fær svona skemmtilegar hugmyndir eins og í teiknimyndum. Ég notaði götótta pappírinn sem varð eftir til að sigta flórsykurinn í gegnum yfir kökusneiðarnar :) Kjút :)


Jæja...best að púðra aðeins á sér nefið.....

á meðan þið sitjið hér og slefið.... haha... ókey!...ekki fyndið :Þ

Umslagakort

Ég hannaði þetta snið af umslagakortum fyrir um 2 árum, bjó síðan til smá sýnikennslu á aðferðinni fyrir snappið mitt. Ég hef oft verið...