Jú það eru allir litlu hlutirnir : )
Þvottaefnið fékk stóra fína krukku til að búa í....
...og mýkingarefnið svona úber sæta flösku
Uppþvottaduftið leigir í þvottahúsinu, enda uppþvottavélin bara handa við vegginn. Miklu þægilegra en að bogra í vaskaskápnum :)
Ég fékk krukkurnar í Pier en flöskuna í Nettó og dundaði mér svo við að skreyta þetta smá :)
Skrautið er úr Skrappoggaman og fleiri fallegum föndurbúðum.
Ég stóðst ekki þennan blómapott í IKEA, svo fallegur :)
og þessi vasi og vatnsúðakanna fundust í Tiger :)
Þetta hjarta gerði ég þegar ég fór á námskeið til henna Dísu í Auskulu. Dásemd!
og þar sem ég er búin að vera að drita niður myndum út um alla íbúð þá varð ég að setja eina í þvottahúsið. Þetta er fallega dóttir mín að telja táslurnar sínar :) Dregur fram bros hjá mér í hvert sinn sem ég geng inní þvottahúsið :)
Rammann fékk ég annaðhvort í RL design eða Tiger design. Nema að hann var silfurlitaður. Ég spreyjaði hann svo svartan, nema mér lá svo mikið á og spreyjaði hann í hörkufrosti úti á palli. EKKI gáfulegt :Þ Lakkið varð allt krumpað sums staðar. Ekkert voða smart. En neyðin kennir naktri konu að spinna. Ég prófaði að pússa rammann en þurftið að pússa of mikið til að ná krumpunum. Nú þá datt mér í hug að finna bara sætan túrkís litaðan pappír og klæða yfir messið. Jú það var bara fínt...NEMA mér tókst að skemma aðeins pappírinn á síðustu metrunum í einu horninu. Nú... finnum bara blóm og eitthvað til að fela þetta :Þ
Jább stundum gerast hlutirnir bara svona óvart! : )










