Það er svolítið smart að setja eina af servíettunum sem á að nota í matarboðið eða afmælisveisluna utan um kerti til að hafa í boðinu, já eða bara nota afgangservíettu á kerti og gefa góðri vinkonu :)
Þessi aðferð sem ég nota er ekki ný, ég lærði þetta af vinkonum mínum í ammeríkunni fyrir möööörgum árum, en eina vandamálið var að ég fékk hvergi vax pappír hér á okkar ylhýra. Þar til í fyrir einu eða tveimur árum, þá rakst ég á þennan pappír í Megastore, á 398 kr jú nó :) Mín soltið happy þann daginn skal ég segja ykkur. Ég veit ekki hvort þessi pappír fáist ennþá þar en það er alls ekki ólíklegt :)
Ég er oft spurð hvort vaxpappír sé eins og bökunarpappír.... svarið er nei...alls ekki eins pappír, en ég reyndi á sínum tíma að nota bökunarpappír og það gekk ekki vel skal ég segja ykkur. Það er svo vont að ná pappírnum af kertinu og hann vill dökkna af hitanum.
Í þessari sýnikennslu nota ég Marimekko servíettu til að setja utan um allt kertið. Það er líka hægt að setja bara á hluta af kertinu, t.d. rönd upp og niður eða hringinn. Þessa aðferð má líka nota með þunnan pappír. Silkipappír hentar mjög vel í það. T.d. er hægt að prenta á hann eða stimpla myndir og/eða texta og jafnvel lita.
Eníhú, þá ákvað ég bara að búa til smá svona sýnikennslu í þessu. Vippum okkur bara í þetta....
Það sem maður þarf er: Kerti (best að nota ljóst), servíetta, vaxpappír, hitablásari (nei hárblásari virkar ekki, svona hitarar fást t.d. í föndurverslunum) og skæri/skeri.
Fyrst flettir maður ysta laginu af servíettunni
Svo mælir maður hvað maður þarf að klippa eða skera mikið af servíettunni.
Mér finnst betra að nota skera, því þá verður skurðurinn svo beinn og fínn.
Rífið bút af vaxpappírnum sem nær vel utan um kertið. Svo er servíettunni vandlega vafið utan um kertið og ef hún er of löng, þá klippið þið af það sem er umfram. Ég læt servíettun ná svona ca 1 cm saman.
því næst vef ég vaxpappírnum þétt utan um (vaxhliðina að kertinu) og held pappírnum saman með höndunum. Það má líka festa hann með t.d. títuprjónum.
Þá er að hita. Passið að hita ekki of lengi á sama stað, þá rennur vaxið á kertinu of mikið. En það þarf samt að hita nógu mikið. Það sést vel þegar vaxið er komið í gegnum servíettuna, þá dökknar vaxpappírinn, eins og sést vel á þessari mynd.
Stundum er erfitt að ná allan hringinn í fyrstu hitun. Hitabyssan er rosalega heit og það þarf að passa að brenna ekki dýrmætu puttana sína :) Þess vegna bræði ég oftast bara uþb helminginn af kertinu, eða eins mikið og ég get, því vaxpappírinn má ekki vera krumpaður, þá verður kertið krumpað (nema maður sé að sækjast eftir þannig áferð). Ég tek vaxpappírinn af og legg svo nýjan utan um kertið og hef þá miðjuna á vaxpappírnum, þar sem ég átti eftir að hita kertið. Ef þið lendið í því að það komi krumpur, þá er alltaf hægt að hita aftur með nýjum sléttum pappír.
Voila, vaxpappírinn farinn og kertið tilbúið :)
Skelltið þessu svo á smá undirskál og kveikti á Marimekko kertinu mínu, sem tók mig 14 mínútur að gera. (helmingi lengri tíma en venjulega, því ég þurfti alltaf að vera að taka myndir :Þ
Servíettan bræðist í raun inní kertið, þannig að það verður þunn vaxhúð utan um hana. Þegar kertið brennur svo niður verður hólkur eftir. Servíettan er ennþá úr pappír svo hún getur brunnið, en ef kertið er nógu vítt, þá ætti loginn ekki að ná í hana. En ef þið eruð smeik við þetta, þá má bara klippa af servíettunni jafnóðum og kertið brennur innan úr. Það kviknar ekki í servíettunni fyrr en nánast allt vaxið er farið af henni.
Hér er mynd af kerti sem ég gerði fyrir jólin og setti í svona smá aðventukörfur handa vinum og ættingjum :)
og hér er annað sem fylgi með í pakka til vinkonu :)
Verði ykkur að góðu elskurnar :)














