Mér hafa alltaf fundist heimili full af bókum eitthvað svo heimilisleg og líka svolítið gáfuleg. Við eigum ekkert rosalega mikið af bókum :Þ en nokkrar samt. :)
Einu sinni vorum við með hilluveggi og þá fengu bækurnar að vera í stofunni, en svo fyrir nokkrum árum viku hillurnar fyrir skenkjum í stofunni, og bókunum var holað inní skápa, ofan í skúffur og uppí hillur í vinnuherberginu og góður slatti fór í kassa og á bókasafn.
Núna er vinnuherbergið frekar þétt skipað af ýmsu dóti og ég mikið búin að spá í hvað ég geti gert við blessaðar bækurnar. Það væri dásamlegt að koma amk hluta af þeim úr vinnuherberginu.
Þegar tiltektin mikla í vinnuherberginu stóð yfir í síðasta mánuði, tók ég 24 bóka safn af Encyclopedia Britannica sem fyllti hér nærri 2 hillur og setti þær ofan á einn skenkinn í stofunni til bráðabirgða. En þetta er svo rosalega yfirþyrmandi eitthvað.
Þetta eru svona, svakalega stórar og þungar bækur. Rúmlega meter allar saman í röð :o
Eiginmaðurinn erfði þetta eftir afa sinn og þar sem að hann býr hér líka, þá verð ég að koma þessu fyrir þannig að ég fór í smá goggle og pinterest leiðangur í leit að lausn á þessu máli.
Eftir laaaanga leit...þá fann ég lausnina....
Ég læt hann bera þær fram og til baka um íbúðina á meðan ég "prufa" ýmsa staði... eftir stutta stund býðst hann til að gefa þær :Þ Nei ok... ég verð að taka þetta alvarlega......
Hvað ef ég bora út úr þeim og bý til blómapotta....
... eða sker út úr þeim svona vasa, bý til koll eða lampa :Þ
Nei kannski ekki....
EN
Það væri kannski frekar að gera úr þeim bókahillu :) Brill hugmynd :)
takið eftir HILLUNNI! (já einmitt...ég sá þetta ekki alveg strax heldur)
eða bara massívar bókahillur
aftur takið eftir HILLUNUM
Kannski ekki of vinsælt hjá bóndanum. Það er smá issue að það sé hægt að nota bækurnar. :)
OK! Einbeita sér að verkefninu! :Þ
Back to business.....Þetta er soltið kúl...
en ekki víst að ég fengi að rífa kápurnar af bókunum : I
awww... ef bækurnar væru nú allar með svona fallegum kjölum sem pössuðu svona flott saman...
aaaaaaahhh....bjútí :)
Stendur ekki einhverstaðar...ekki dæma bókina af kápunni.....
Það væri hægt að klæða kilina í smá dulargerfi... eithvað svona til að brjóta upp þennan risaklump af bókum.
Þetta er kannski aðeins of mikil litagleði fyrir minn smekk en góð hugmynd :)
Svo finnst mér alltaf svolítið kjút að setja bækur í stiga
en enginn stigi á þessu heimili....
Þetta finnst mér ÆÐI!
Kannski gæti ég komið þeim fyrir í nýju sófaborði....
Mér líst alltaf betur og betur á þessa hugmynd :)
Ef ég ætti hins vegar fullt fullt af bókum, þá væri þeim örugglega raðað einhvernveginn svona....
Svo nú mun ég spá betur í kilina áður en ég kaupi nýjar bækur.
Þessar mundu t.d. allar komast í gegnum síuna :)
Bækurnar mínar, þessar sem ég á eru þó enn á hrakhólum.
Hafið þið einhverar frábærar hugmyndir handa mér?
Men hvað þetta var langur póstur. Þið eruð hetjur sem skrolluðuð alla leið hingað :)











