Ég keypti mér þessa fínu vængi í Ice in the bucket. Dró svo fram pils og kjól sem ég átti til. Fjárfesti í dýrindis glimmer legghlífum og saumaði ermar úr gardínuefni sem ég fann inní skáp. Föndraði svo geislabaug/krans, smá meiköpp og mín bara orðin engill :) Ég sem hélt það mundi þurfa svo miklu meira til!
Þetta vakti alveg stormandi lukku, sérstaklega þegar ég sópaði niður gestum og gangandi þar sem ég "sveif" pent um húsið eins og sannir englar gera!
p.s. það er gott að alvöru englar þurfa ekki á klósettið :)
Pússa vængina fyrir myndatöku :)
Strympa, touched by an angel...
Og hér er svo allur hópurinn. Svo miklir snillingar þessar konur sem ég vinn með :)
Vá ekkert smá flottur engill, blúndur og blóm og hvítt fer allt SVO vel saman :)
ReplyDeleteJiii, þetta er dásamlegt :) Gaman að taka svona þátt í þessu :)
ReplyDelete