Mér finnast aðventudagatöl svo skemmtileg. Það er eithvað svo að spennandi að telja nidur í jólin. Ég er alin upp við svona dagatal sem mamma saumaði út og setti pakka á handa okkur systkinunum, á tímabili héngu þrír pakkar á hverjum degi. tíhíhí, það hefur verið vinna fyrir gömlu að græja þetta maður! :Þ Þegar að dóttir mín svo fæddist fyrir 17 árum þá myndaðist ég við að sauma út svipað dagatal og hefur það verið notað á hverju ári síðan við mikla gleði heimasætunnar.
Í gegnum tíðina hef ég séð ótal sniðugar útfærslur á aðventudagatölum, þvottaklemmur á snúru, eldspítustokka raðaða saman í mismunandi form, smáskúffudagatöl sem hægt er að mála og skreyta sjálfur, bréfpokar, pakkar í körfu og svo mætti lengi telja. Eitt af því skemmtilegasta sem éghef séð er dagatal með miðum, á miðunum eru hlutir sem fjölskyldan gerir saman á aðventunni, t.d. Kaupa jólagjöf handa pabba, heimsækja ömmu, setja ljós á leiðid hjá afa, fara í bíó, göngutúr með vasaljós eftir að þad er orðiðdimmt, baka smákökur, skreyta jólatréð, poppa og horfa á jólamynd, fara á skauta, lesa jólasögu, bíltúr að skoða jólaljósin .... Eruð tið að sjá hvad þetta er brilljant!? Í raun eru þetta flest allt hlutir sem að maður gerir á aðventunni, en með tví að setja þá í dagatal þá fá krakkarnir að hlakka til og eru spenntir að vita hvað á að gera á morgun. :)
Um daginn fékk ég hugmynd. Við fórum öll systkinin í myndatöku með börnin okkar, planið var að gefa mömmu og pabba eina mynd í jólagjöf af okkur saman. Við fengum síðan svo margar góðar myndir og þá kom hugmyndin að búa til dagatal úr þeim. Eina mynd á dag fram að jólum og albúm til að setja þær í. Miklu skemmtilegar finnst ykkur ekki? Við fórum með dagatalið til þeirra í dag og þau opnuðu fyrsta pakkann. Þetta hitti svo sannarlega í mark. Nú eru þau eins og litlir krakkar að bíða spennt eftir jólunum .) bara krúttað :)
Nýja fína útskurðarmaskínan mín, frú Silhouette Cameo, skar þessa merkimiða svona huggulega út fyrir mig, hún er alveg meððettessi elska :)
Búið að opna fyrstu myndina heima hjá mömmu og pabba :) Þetta eru systkinabörnin fallegust :)
Jæja, eruði orðin spennt að opna þetta bloggjóladagatal? :) eða aðventudagatal... umm hvort heitir þetta aðventu eða jóla dagatal? kannski bara bæði betra :)
Gleðilegan Desember!
Snilldarhugmynd!
ReplyDeleteFrábær hugmynd og að sjálfsögðu frábærlega úr garði gjörð eins og þín er von og vísan !
ReplyDeleteó mæ, hvað þetta er fallegt og frábær hugmynd! Ég er einmitt á því að afar og ömmur njóti mynda og persónulegra gjafa einna mest, þau eiga hvort eð er "allt". Hlakka til að fylgjast áfram með aðventublogginu!
ReplyDelete